Búðu til sniðmát og gefðu út stafræna passa — starfsmannaskírteini, félagaskírteini, aðgangskort og viðburðapassar á örfáum mínútum.
Dæmi um viðskiptavini sem nota Lykilkort
Einfaldaðu útgáfu og stjórnun skírteina — sparaðu tíma og peninga
Einfalt viðmót til að hanna og gefa út skírteini án tækniþekkingar.
Skírteinin virka í Apple Wallet og Google Wallet, á öllum símum.
Stilltu sjálfvirkan gildistíma og ógildaðu skírteini með einum smelli.
Allir passar eru stafrænir, engin þörf á að prenta og senda.
Samkvæmt íslenskum lögum ber atvinnurekendum að útvega starfsfólki og verktökum vinnustaðaskírteini og tryggja að þau séu sýnileg við störf. Lykilkort gerir það einfalt að uppfylla þessa lagaskyldu — stafrænt, öruggt og með fullri yfirsýn.
Frá sniðmáti til stafræns skírteinis á örfáum mínútum
Hannaðu skírteini með þínum litum, merki og upplýsingum.
Sendu kortið til starfsfólks eða verktaka.
Viðtakandi bætir skírteini í Apple Wallet eða Google Wallet.
Fylgstu með gildistíma og afturkallaðu skírteini.
Öflug verkfæri til að búa til, dreifa og stjórna stafrænum skírteinum
Hannaðu skírteini með þínum litum, merki og upplýsingum.
Stilltu sjálfvirkan gildistíma á kortunum við útgáfu.
Gefðu út mörg skírteini í einu með CSV innflutningi.
Bættu við QR kóða eða strikamerki fyrir skönnun.
Full yfirsýn yfir öll útgefin skírteini og stöðu þeirra.
Tengdu við eigin kerfi með okkar vefþjónustu (REST API).
Fyrirtæki um allt land nota Lykilkort til að einfalda rekstur
„Við höfum sparað ótrúlegan tíma og kostnað. Áður þurftum við að prenta og afhenda plastkort, núna sendum við bara kortin rafrænt.“
„Einfalt að nota og einstaklega þæginlegt að hafa skírteinið í símanum, engin týnd kort lengur.“
„Fullkomin lausn fyrir okkur sem erum með marga verktaka á vinnusvæðum. Yfirsýnin er frábær.“
Veldu áskrift sem hentar þínum þörfum
Allt sem þú þarft til að gefa út passa fyrir lítinn hóp
Hannað til að gefa út passa í stórum stíl
Öll verð með VSK. Hægt að hætta áskrift hvenær sem er.
Finndu svör við algengum spurningum um Lykilkort
Þú býrð til reikning, hannar sniðmát og gefur út passa. Viðtakendur þurfa iPhone eða Android síma með Apple Wallet eða Google Wallet.
Já, passarnir virka á öllum iPhone símum (iOS 6+) og Android símum (6.0+) sem styðja Apple Wallet eða Google Wallet.
Já, þú getur gert passa óvirka hvenær sem er. Passinn verður óvirkur í Wallet appinu.
Þú sendir hlekk (t.d. í tölvupósti eða SMS) og viðtakandi smellir á hann. Síðan bætir viðtakandi passanum í Wallet á símanum.
Já, allar tengingar eru dulkóðaðar (HTTPS) og passarnir eru undirritaðir með Apple/Google öryggisvottunum. Gögn eru geymd á öruggum netþjónum.
Búðu til og sendu þitt fyrsta stafræna skírteini á örfáum mínútum — alveg ókeypis.